O jæja

Ég er ekki búinn að fara neitt um verslunarmannahelgina, nema hvað að ég fór aðeins upp í Borgarfjörð að vinna, mældi þar einn skurð, og rak niður nokkra hæla. Til þess að komast þangað þurfti ég að aka eftir einhverjum albesta þvottabrettisvegi sem ég hef nokkurn tímann keyrt. Fyrir þá sem til þekkja, þá er þetta þjóðvegur 505, Melasveitarvegur. Ég reikna ekki með að hann verði malbikaður í bráð, enda aðeins fáeinir bændur sem nota þennan veg að staðaldri. En það mætti svo sannarlega hefla kvikindið.

Ég horfði á myndina Man of the Year í gærkvöldi. Prýðismynd í alla staði, Robin Williams fer á kostum, og Walken er fjandi góður líka.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband